Velkomin á heimasíðu Helga, Önnu Rósu og Hildar Líf
Rauðiherinn
14.04.2008 18:49:38 / htsi

17. apríl er dagurinn

Verð sett af stað á fimmtudaginn, fékk nú samt engan til að skoða mig í dag til að ath nú hvort allt væri nú í lagi. Hef ekki farið í skoðun síðan ég var gengin 38 vikur en er gengin 41 viku og 4 daga. Danir gera ekkert auka fyrir mann, ekki þó ég hafi grátbeðið hana bara um að ath hvort barnið væri nú skorðað til þá að vera viss ef vatnið fer að þá get ég verið róleg heima í stað þess að hringja á sjúkrabíl. Nei þeim er sko ekki haggað hérna. Síðan er skemmtilegt til þess að vita að hér fara allar hjúkkur og ljósmæður í verkfall á miðvikudaginn, hver ætli þjónustan verði þá á spítulunum. Endar sennilega með því að ég verð ekkert sett af stað, verð bara að bíða eftir að þetta gerist að sjálfum sér. Er það ekki bara típískt???
En allavega þá er ég bara nokkuð hress og barnið hefur unun að því að synda um og spyrna í, þannig að ég geng til og frá þegar það gerir það. Þvílík spörk sem það getur sent manni. Næturnar eru nú samt orðnar erfiðar og ég vakna í hvert skipti sem ég sný mér og ég veit ekki hversu oft ég þarf eiginlega að fara á klósettið á hverri nótt, er hætt að telja!!
En staðan semsagt þannig að það er akkúrat ekkert að gerast og gerist sennilega ekki neitt fyrr en 17.apríl. Gæti nú samt lent í að Auður systir fái þetta bara í afmælisgjöf, hún á afmæli 16.apríl. Sjáum hversu gjafmild ég verð híhíhí
kv. Anna Rósa

» 13 hafa sagt sína skoðun

11.04.2008 12:16:23 / htsi

Biðin getur verið löng

..... þar sem maður gerir ekkert annað en að bíða. Tíminn er farinn að líða hægt og ég veit nákvæmlega hvað er á dagskrá í sjónvarpinu hverju sinni. Finnst það eiginlega of langt gengið sko. Hélt ég væri að fara af stað í fyrrinótt (aðfaranótt miðv) því það voru svo ferlega mikil læti í barninu og þrýstingur í allri kúlunni og niður eftir öllu, en svo kl 3 um nóttina hætti allt saman og ég gat loksins sofnað. Síðan hefur allt verið rólegt. Ég held ég þurfi að fá ráð til að koma þessu bara af stað, hvað leggið þið til????
Ef ég verð ekki farin af stað sjálf á mánudaginn á ég að hafa samband uppá spítala um þá gangsetningu, allavega að láta þær kíkja á mig, kæri mig nú eiginlega ekki um bíða mikið lengur en það, barniðr verður 30 merkur á endanum og ég er ekki alveg tilbúin í að koma því í heiminn svo stóru hahahaha.
Jæja ætlaði nú bara að uppfæra ykkur um fréttir héðan yfir hafið, veit það eru margir farnir að bíða spenntir og með símann límdan við sig. Þið fáið að vita þegar þetta fer af stað. LOFA!!!!
kv. Anna Rósa 41 vika og 1 dagur

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 12:38:23 / htsi

Enn bíðum við

... og það virðist ekkert ætla að flýta sér í heiminn þetta barn. Finnst greinilega best að vera bara í hlýjunni í bumbunni. Það er þó farið að hlýna hjá okkur aðeins hér í DK en mætti samt vera hlýrra finnst mér, er svona í kringum 8 til 10 gráður á daginn en fer undir frostmark á nóttunni. T.d. þurfti Helgi að skafa í morgun.
Ég er nú alveg tilbúin í að þetta fari nú að koma, sef orðið illa á nóttunni, það er erfitt að snúa mér og svo er ég allt í einu komin með þvílíkan verk alltaf undir hægra herðablaðið, get varla notað hendina, þannig að það er ekki að auðvelda mér hlutina. Enda eru hlutirnir farnir hálfpartinn að rykfalla uppí herbergi. Löngu búin að setja rimlarúmið upp og vagninn stendur úti á gólfi ásamt barnabílstólnum og ömmustólnum.
Helgi er líka orðinn hálf óþolinmóður eftir þessu híhíhí eins og Hildur Líf. Finnst þetta taka óratíma. En svona er þetta bara, maður ræður þessu víst ekki.
En allavega ætlaði ég bara að leyfa ykkur forvitnu að fylgjast með híhí.
kv. Anna Rósa komin 40 vikur og 4 daga

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 12:06:31 / htsi

Komin í viku 40

Jæja nú fer þetta að styttast allt saman, komin í viku 40 í dag. Allt gengur vel og ekkert að gerast, allavega ekki alvarlegt. Fæ nú samt smá pílur og er með svoldin bjúg en annars er ég bara mjög hress. Þetta má nú alveg fara að koma, er búin með öll verkefni sem ég er búin að dreyfa á febrúar og mars mánuð hehe, þannig að ég er farin bara að bíða eftir næsta verkefni, sem mér hlakkar mjög til. Finnst þetta næstum þvi vera eins og að eignast mitt fyrsta, það er svo langt síðan Hildur Líf fæddist. Á samt örugglega eftir að rifjast fljótt upp. Ég er búin að segja við þær á leikskólanum hennar Hildar að hún komi núna bara annan hvern dag þegar ég er með bílinn, finnst ekkert voða spennandi og treysti mér ekki til að labba hina daga með hana í leikskólann og taka strætó, þar sem að í síðustu skoðun var barnið ekki búið að skorða sig og ef vatnið fer þarf ég bara að leggjast niður þar sem ég er og hringja á sjúkrabíl. En allavega, þá ætlaði ég bara að láta vita af mér, veit að það er fólk farið að fylgjast grant með gangi mála hehe. Ekkert að gerast ennþá allavega.
kv. Anna Rósa

» 5 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 09:48:49 / htsi

39 vikur í dag

jebbs, var að skríða í viku 39 í dag, er samt allt rólegt og ekkert að gerast. Hef nú samt annað slagið einhverja stingi og strauma og á orðið erfitt með að ganga einhverja smá vegalengd nema að halda að barnið ætli að detta út því það þrýstir svo niður. Vonandi bara að þetta fari að koma fljótlega.
Annars er allt gott að frétta af okkur fjölskyldunni, Helgi byrjaður aftur í skólanum og Hildur Líf í leikskólanum og ég bara heima. Hér er reyndar búið að vera leiðinda veður alla páskana og var nú ekki gert eins mikið og við höfðum ætlað okkur en við náðum að fara í dýragarðinn í Álaborg miðvikudaginn fyrir skírdag og svo á skírdag var okkur boðið í afmæli og svo matarboð um kvöldið þannig að við þurftum lítið að spá í mat þann daginn hehe. Við höfðum það annars bara voða notalegt um páskana, slöppuðum af, horfðum á góðar myndir og hittum vini okkar og fórum jú í bingó á laugardaginn fyrir páskadag niðrí Horsens. Það var voða gaman og fékk Hildur Líf tvo vinninga, ekkert smá heppin þar. Síðan á páskadag voru íslensk páskaegg opnuð og fékk Hildur Líf eitt no 5 sem hún borðaði varla, rétt nartaði í innihaldið en við foreldrarnir sáum um súkkulaðið uuuummmmm íslenskt súkkulaði alltaf best. Höfðum svo lambalæri frá nýja sjálandi í matinn sem smakkaðist voða vel. Hildur Líf var líka mjög ánægð með málsháttinn sem hún fékk og kann hún hann utan að og hlær alltaf þegar hún fer með hann, finnst hann svo fyndinn, en hún fékk "Barnið vex en brókin ekki".
Ég er svo búin að útbúa heimasíðu fyrir Hildi og litla krílið þegar það kemur inná barnaland en á í einhverjum erfiðleikum með að setja inn myndir, þarf eitthvað að skoða það. en slóðin en www.hildurlif.barnaland.is
Jæja læt þetta nægja í bili
þangað til næst
kv. Anna Rósa

» 6 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 09:07:31 / htsi

29 ára!!!

Jebbs, það eru víst komin 29 ár síðan ég leit dagsins ljós og bara 365 dagar í árin 30!!! Finnst svo stutt síðan ég var bara 19 og ennþá í menntaskóla og lifa lífinu. Það hefur ýmislegt breist á 10 árum. Dísess, það er sko heill hellingur. Ég er búin að klára stúdentspróf, klára námí aðstoðarkonu tannlæknis og svo háksólanám í Danmörku þar sem ég kláraði Tannfræðinginn. Kynntist elskunni minni fyrir 9!!!!! árum síðan og við trúlofðum okkur fyrir 7 árum síðan. Eignuðumst Hildi Líf fyrir næstum 6 árum síðan og eigum von á öðru barni eftir ca. 3 vikur. Höfum ferðast mikið um evrópu og notið þeirra forréttinda að eiga heima í Dantmörku í tæp 3 ár og eigum eftir að vera önnur 3 ár í viðbót allavega.  Þetta var kannski það helsta sem stendur hæst uppúr en margt annað hefur nú verið brallað sem er kannski óþarfi að nefna hér.
Ummm ég fékk sendigu frá mömmu og pabba í gær, afmælispakka og auðvitað smá íslenskt nammi. Er einmitt að maula á hrískubbum á meðan ég skrifa hér. Alltaf er nú íslenska súkkulaðið best. Síðan eru íslensk páskaegg komin í hús, það verður nú gott að maula á því um páskana.
Jæja ætli það sé ekki best bara að fara setja á kökur, var búin að lofa köku í dag.
Hafið það gott öll sömul, allavega ætla ég að láta fara vel um mig.
Kv. Anna Rósa  

» 8 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 10:29:16 / htsi

Tilbúin og með fyrirvaraverki

Já ég er farin að fá fyrirvaraverki. Var með verki um daginn og svo í gær, lýstu sér eins og túrverkir, og svo í nótt var ég stanslaust að fá pílur. Kannski að spáin hans Helga standist bara og við fáum bumbugullið í hendurnar um páskana.
Ég held sko ekki, held að marsmánuður fái nú alveg að líða. Annars er spenningurinn eftir bumbugullinu að verða mikill, þar sem stóra systir er að verða ansi spennt og spyr næstum daglega hvenær það komi. Hún er fara vera með í leikfimissýningu 5. apríl og þar vill hún að litla barnið verð að horfa á hehe.
Annars er allt orðið tilbúið fyrir komu barnsins, búin að þvo allt og þrífa. Eigum eftir að setja upp rúmið en ætlum að gera það bara um páskana. Vagninn og ömmustólinn eru inn í gestaherbergi og þar hefur Hildur Líf flutt sig yfir með dúkkurnar, ekkert smá mikið að gera í mömmuleik. Dúkkurnar sofa mest allan daginn og sitja svo þess á milli í stólnum, hahaha. Það er svo gaman að fylgjast með henni í foreldrahlutverkinu, hún er bara í öðrum heimi þegar hún dettur í það hlutverk.
Annars er einhver kvefpest að herja á prinsessuna þessa dagana og hélt ég að hún væri að verða lasinn á föstudaginn, þar sem hún hóstaði svo mikið og kvartaði um í eyrunum. Hefur reyndar verið svona alla helgina en er ekki með neinn hita þannig að hún fékk að fara á leikskólann í dag. Vonandi verður þetta bara ekkert meira.
Það styttist óðum í afmælisdaginn (13.mars), ætli maður baki ekki eins og eina köku í tilefni dagsins, þó hann sé nú ekkert merkilegur þannig. Verður sennilega stærri veisla á næsta ári. Veit samt að ég á von á pakka með póstinum frá mömmu, jibbý!!!! og ég veit líka að það er eitthvað góðgæti í honum líka. uuummmm!!!!!!
Tókum nokkrar bumbumyndir um helgina, reyni að henda þeim inn við tækifæri. Læt ykkur vita. Annars ætla ég að fara í Bilka og versla í köku.

Hilsen
Anna Rósa

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 10:42:44 / htsi

Myndir myndir

Jábbs það eru komnar nýjar myndir!!!!! Skellti inn nokkrum myndum inná myndasíðuna okkar, www.picasaweb.google.com/helgianna kíkið endilega á þær.  Settum inn bumbumyndir af mér og svo okkur mæðgum.
kv. Anna Rósa

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 10:36:26 / htsi

Hitt og þetta

Hvar á ég eiginlega að byrja?? Já ok. Útskriftin gékk eins og í sögu og get ég nú formlega sagt að ég sé orðin tannfræðingur. Engin smá nafnbót það- finnst mér allavega 8)  Við skruppum svo til Prag 5.feb til 9.feb. Æðisleg borg í alla staði og æðislega gaman að skoða þar. Þrömmuðum borgina þvera og endilanga og ótrúlegt hvað ég komst yfir að skoða mikið þar sem ég var nú ekki búin að vera góð í grindinni dagana fyrir brottför, og á tímabili var ég að spá í að hætta við að fara. Lét mig nú samt hafa það og sé sko ekki eftir því. Ég keypti mér svona belti til að halda undir kúluna og ég held að það hafi hjálpað mikið. Við fengum ofsalega gott veður í Prag, það var bjart allan tíman og milt veður, var pínu kalt fyrsta daginn en svo var þetta bara mjög fínt. Sólin lét sjá sig stundum og yljaði okkur. Tókum fullt af myndum sem þið getið skoðað. Linkurinn á þær er í færslunni á undan.
Ég er nú orðin ein í kotinu á daginn, :( finnst það ekkert voða skemmtilegt en ég er nú að reyna að dunda mér við hitt og þetta. Tók t.d. öll litlu barnafötin og þvoði eitthvað af þeim í gær og set sennilega meira í þvottavél á eftir. Ætli ég taki ekki svo straujárnið fram og straui t.d. sænguver og taubleiur. Ágætt að hafa þetta bara tilbúið svona ef hlutirnir gerast eitthvað hratt. Verð komin 34 vikur á fimmtudaginn og á eftir að gera allt. Á eftir að kaupa rúm, var að spá í að leygja mér vöggu en sé til. Kannski þægilegra að hafa hana hérna niðri svo ég þurfi nú ekki að vera hlaupa alltaf upp stigana. Síðan þarf ég að redda mér bílstól, skiptidýnu, og svo þessa típísku smáhluti, handklæði, bossaþurrkur og ég veit ekki hvað og hvað. Er búin að búa mér til lista yfir það sem mér vantar og þarf svo að fara kíkja í búðirnar.
Hildur Líf byrjaði svo aftur á leikskólanum í gær eftir 3 vikna frí. Fyrst komu amma og afi í heimsókn, síðan var það prag og svo tók vetrarfrí við í leikskólanum þannig að hún er búin að taka gott og langt frí. Hún var reyndar orðin frekar leið núna síðustu vikuna að hanga bara svona heima hjá mömmu sinni og var alsæl með að fara í leikskólann í gærmorgun.
Það er síðan komið í ljós að við flytjum til Horsens í sumar, fáum íbúð eða raðhús þar 1.juní. glænýtt, 110 fm með 4 svefnherbergjum. Skólinn sem Hildur Líf mun fara í er nánast í garðinum hjá okkur og getur varla verið betra. Þannig að það taka enn aðrir flutningarnir við. Ég sem sagði það ábyggilega í haust að eftir að ég flutti hingað í Holmkærvej ætlaði ekki að flytja aftur fyrr en við myndum flytja til Íslands, en svona breytast aðstæður.
Ég er svo að spá í að hætta með þessa bloggsíðu þar sem að blog.central.is er ekkert smá leiðinleg síða. Hef ekki komist inná síðuna mína í um viku. Hef ákveðið að búa bara til síðu inná barnaland eða barnanet fyrir Hildi og krílið en ég læt ykkur vita þegar það er tilbúið.
Ætla að fara finna straujárnið og setja í þvottavél
Bestu kveðjur til ykkar sem lesa síðuna og takk fyrir allar kveðjurnar, finnst ekkert smá gaman að lesa þær.
kv. Anna Rósa bumba

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 16:29:19 / htsi

Prag!!!!

Vorum að skella inn myndum frá útskriftinni minni og svo Prag inná www.picasaweb.google.com/helgianna   Skrifa um ferðina seinna.

kv. Anna Rósa, Helgi og Hildur Líf

 

eXTReMe Tracker

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 17:08:44 / htsi

Tannfræðingur!!!!!

Míns er bara orðin tannfræðingur!!!!:D8) Haldið að mér hafi bara ekki tekist ætlunarverkið sem hófst fyrir 2 og hálfu ári síðan. Útskriftin er á morgun (fimmtud) kl 15 í skólanum. Þar verður okkur afhent plögg um þennan merka árangur og svo eru veitt ýmis verðlaun fyrir t.d. hæstu meðalaeinkun og fleira. Við ætlum svo bara að elda góðan mat heima og vera saman fjölskyldan. Þessi tími er búinn að vera fljótur að líða en líka erfiður en skemmtilegur. Við höfum upplifað ýmislegt saman fjölskyldan og gert ýmislegt sem okkur hefur aldrei dottið í hug að við ættum eftir að gera. Ferðast heilan helling, kynnst yndislegu og skemmilegu fólki sem við leytum mikið til þó svo að sumir séu farnir aftur til Íslands og sumir á leiðinni þangað í sumar en þannig er bara gangur lífsins. Það verða bara skemmtilegir hittingar seinna.

Ég er búin að fá ýmsar gjafir frá fjölskyldunni síðustu daga. Mamma og pabbi gáfu mér eyrnalokka og hálsmen frá Georg Jensen. Auður og fjölsk. gáfu mér gjafakort í dekur í Laugum, tengdó gáfu mér flíspeysu frá 66 norður og Helgi og Hildur gáfu mér ipod nano. Systur tengdamömmu, fjölskyldur þeirra og amma hans Helga og Guðjón gáfu mér svo ofsalega fallegt hálsmen með stórum bleikum stein. Ekkert smá flottar gjafir allt saman!!!

Jæja ég ætlaði bara aðeins að láta heyra frá mér, segir ykkur kannski frá útskriftinni í næstu færslu.

kv. Anna Rósa tannfræðingur ;)

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 16:02:12 / htsi

Jebbs....

hhhhmmmm, hvað á ég að segja ykkur?? Var að fá útúr skriflega prófinu mínu áðan, fékk 7 sem er sama og ca. 8 á íslenskum skala. Bara nokkuð sátt við það. Þá á bara ein einkun eftir að koma en hún kemur á mánudaginn þegar ég fer í munnlega prófið úr lokaritgerðinni minni. Það verður æðislegt þegar þetta verður allt búið og míns bara komin í langt frí. Helgi er líka að fara í munnlegt próf á mánudaginn úr sínu verkefni sem hann er búinn að vera að vinna með í allan vetur. Hann er búinn að eyða mestum sínum tíma í þessari viku í skólanum enda er hann kominn með króníska vöðvabólgu held ég og endaði það svo með að hann er fastur í hálsinum núna. EKki gott!!! 

Hildur Líf fór líka í smá próf í morgun (miðv) þegar hún var tekin í tungumálatest í skólanum hérna í Trige. Þetta er alltaf gert við öll börn hérna í DK ef þau eru útlendingar og hafa annað tungumál en dönsku sem móðurmál. Það gékk bara ofsalega vel og gat hún svarað öllu sem konan spurði hana um. Þið getið ímyndað ykkur hvað mömmuhjartað var montið þegar þessu var lokið. Við fáum svo útkomuna úr þessu í apríl einhverntíman.

Það styttist svo í að tengdó komi til okkar en það er bara á laugardaginn. Þau ætla að koma og vera með okkur á útskriftinni minni. Því miður kemur enginn frá minni fjölskyldu en ég fékk þau um jólin sem var líka bara mjög fínt. Síðan held ég að fólkið mitt sé eitthvað farið að huga að danmerkurferð í mai til að kíkja á nýjasta fjölskyldumeðliminn hehe.

Ég er búin að vera nokkuð hress bara undanfarið fyrir utan að ég er misslæm í grindinni og rófubeininu. T.d í gær labbaði ég með Hildi í leikskólann úr strætó sem er engin vegalengd en ég var eins og aumingji á eftir. Gat rétt svo labbað hænuskref eftir það og var svo ómöguleg í nótt en er svo fín í dag. Stundum þarf ekki mikið til að ég verði slæm en dagarnir eru missjafnir. það er alltaf sama fjörið í krílinu, aldrei friður fyrir hreifingum og spörkum og hefur óspart leyft tilvonandi stóru systir og pabba að finna fyrir því. Hildur Líf er líka ofsalega góð við bumbubúann, alltaf að koma og kyssa á kúluna og segjast elska litla barnir. Vonandi á það eftir að halda áfram þegar það verður komið í heiminn.

Við fórum á sunnudaginn að skoða hús niðrí Horsens sem íslendingar eiga. Erum nefnilega að huga að því að flytja þangað útaf skólanum hans Helga. Hann er hundleiður á þessari keyrslu alltaf og ég á að vera alltaf bíllaus, sérstaklega núna þegar ég þyrfi að fá að vera á honum þegar ég á orðið svona erfitt með að labba langar vegalengdir. En það þýðir ekkert að hugsa um það. Þetta hús hentaði okkur engan veginn þar sem það er á tveimur hæðum og snarbrattur stigi niður í svefnherbergin. Hildur Líf var ekki að þora í hann nema maður leiddi hana. Við fundum svo annað hús sem við förum að skoða í febrúar. Það er í Egebjerg rétt fyrir utan Horsens og þar fara öll íslensku börnin í skóla og fá íslenskukennslu sem er mjög gott. Þetta eru ný raðhús, 110 fm með 4 svefnherbergjum. Mjög spennandi og vonandi fáum við eitt af þeim en það kemur í ljós í feb.

Veðrið hérna er búið að vera leiðinlegt uppá síðkastið. Nánast alltaf rigning en kemur þó sól inná milli og fínt veður. En í dag er búið að vera úrhellis rigning og vindur og ekkert spennandi og þessu er víst spáð fram á mánudag :(    Vonandi verður komið gott veður í næstu viku gestirnir koma. Ég er að spá í að elda eitthvað gott á útskriftardaginn. Var búin að láta mér detta í hug nautalund og kannski einhvern góðan forrétt en er samt ekki alveg búin að ákveða þetta ennþá. Kemur í ljós hvað ég geri.

Á að horfa á leikinn í kvöld, það er varla að maður nenni því. Veit reyndar ekki hvort ég geti séð hann á einhverri sjónvarpsstðöðinni hérna. Best að kíkja á það.

kv. Anna Rósa


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 10:24:22 / htsi

Tíminn líður

Já það er sko ekki hægt að segja annað en að tíminn líði hratt. Janúar næstum hálfnaður og ég búin með tvö próf. Gékk ofboðslega vel í skriflega prófinu sem var 3.jan en kannski ekki eins í munnelega prófinu en ég náði því með 7 og er ég bara sátt með það að hafa náð því. Hef aldrei verið góð í að tjá mig þegar ég er stressuð og hvað þá á "útlensku", en þetta hafðist og er ég bara glöð með það. Veit reyndar ekki ennþá hvað ég fékk í skriflega prófinu en ég vona að það verði í hærri kantinum. Einkunin hlýtur að fara detta inn næstu daga, ég er daglega inná síðunni minni hjá skólanum til að ath með hana hehe. Það eru svo tvær vikur í næsta munnlega prof sem verður 28.jan úr lokaverkefninu mínu. Ég er nú ekkert mikið stressuð fyrir það enda búin að heyra að verkefnið er godkendt þannig að nú er það bara á mínu snæri að hækka einkunina með góðum skilgreiningum og rökstuðning á verkefninu, held að það reddist nú alveg. Hef allavega mjög góðan tíma í undirbúning fyrir það.

Ég fór áðan í grunnskólann hérna í Trige til að skrá Hildi í skólann. Jújú litla barnið mitt er að fara í skóla í haust. Henni hlakkar ekkert smá til, er að æfa sig að skrifa stafina og læra hvað þeir heita svo hún verði nú tilbúin í slaginn í haust.

Ég er svo að fara hitta ljósmóður á morgun, það verður spennandi að sjá hvort allt er ekki eins og það á að vera, hef reyndar engar áhyggjur af að það sé ekki. Ég er mjög hress og líður afskaplega vel. Ég má reyndar passa mig að ofgera mér ekki því þá fæ ég bjúg á lappirnar og þegar ég geng mikið að þá á ég oft erfitt með að standa upp ef ég sest niður því það reynir greinilega eitthvað á grindina að labba mikið. Ég nátturulega er ekki búin að vera passa mig því ég hef verið að hlaupa með Hildi í strætó á morgnana og svo úr strætó og í leikskólann og svo hleyp ég í hann aftur því ég hef rétt 10 mín til að koma mér í leikskólann og upp í strætóskýli aftur til að ná honum aftur heim því annars þarf ég að bíða í hálftíma eftir næsta og ég er ekki að nenna því eins og veðrið er búið að vera síðustu daga og vikur. Rigning og rok og hrikalega kalt. Held ég verði að fara slaka aðeins á því ég er farin að fá verki í kúluna, svona eins og hlaupasting þegar ég labba of hratt. Annars er þetta algjör fjörkálfur sem við eigum von á held ég því það líður varla sú mínuta að það séu ekki spörk og mikil læti. En barnið sefur allar nætur því ég verð ekki vör við það þá. Eins gott að það sé bara undanfari þess sem á eftir að koma hehe.

Ætli ég láti þetta ekki duga í bili, ætla að fara taka utan af rúmum og þrífa aðeins hérna hjá mér. Heimilið hefur alveg verið látið sitja á hakananum síðustu daga og vikur.

Hilsen

Anna Rósa


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 09:19:49 / htsi

Gleðilegt nýtt ár!!!!

og takk fyrir það gamla. Við erum semsagt búin að halda okkar fyrstu jól erlendis og þá hér í Danmörku. Það var nú bara nokkuð gott að vera heima og ekki að vera þeysast á milli fólks og troða sig út af mat, þó svo að við höfum alveg borðað slatta af jólamat og sælgæti hér heima. Mamma, pabbi og Kristófer voru svo yndisleg að koma til okkar rétt fyrir jólin og vera hér til 27. des. Held líka að það hafi bjargað miklu að jólin voru svona yndisleg. Mér finnst reyndar afskaplega lítið jólalegt hér í DK og fór ég eiginlega aldrei í neitt jólastuð. Fann fyrir jólafýling í lok nov en svo týndis stemningin einhversstaðar í allri verkefna vinnunni og tímaleysinu sem herjaði á okkur hjónaleysin í desembermánuði. Danir eru heldur ekkert mikið fyirr að skreyta hjá sér og ég tala nú ekki um fyrirtækin hér í Árósum, engin með jóla tré og hvað þá séríu í gluggunum. Ef maður vill eða langar að sjá jólaljós þarf maður að fara niður á strikið og sjá þar jólaljós. Áramótin voru mjög fín hjá okkur í ár. Stína, Viðar og strákarnir komu til okkar í mat og skutu svo upp með okkur bomburnar. Alltaf er nú jafn gaman að kaupa þær hér í DK, kosta skid og ingen ting!!!! keyptum stóran fjölskyldupakka með 22 ragettum og 3 eða 4 litlum kökum og einhverju gosi í plús eitthvað að blisum og alls konar skemmtilegu dóti, eina 50 skota köku NB: var hrikalega flott!!! og svo Eina duglega áramóta bombu. Allt þetta á 560 dkr. Sáum að svipuð kaka á íslandi og við keyptum hér kostaði 16.000kr. Hvað er málið að láta þetta kosta svona mikið??

Nú hefur hversdagsleikinn tekið við á nýju, enda kannski bara ágætt þar sem að maður var farinn að rugla svefninum og ekki að sofna fyrr en að ganga 2 á nóttunni. Hildur Líf fór í leikskólann í morgun, hlakkaði ekkert smá til að fara þangað. Meira hvað það er skemmtilegt á þessum leikskóla, sem er kannski bara mjög gott, þá er ekkert vesen að fara þangað. Ég er svo búin að eyða meiri hlutanaum að af jólafríinu að lesa fyrir próf sem ég er að fara í á morgun (3.jan) í tannréttingum og barnatannlækningum. Verður eitt stórt próf og er reiknað með 5 tímum í það. Issss ég rúlla því upp er það ekki ?? ;):haha:  jú jú það gengur vonandi vel. Síðan fer ég í munnlegt próf 11. jan. og svo aftur í munnlegt próf úr lokaverkefninum mínu 28.jan og þá er míns bara búin með skólann. Díses hvað mig hlakkar til:!::!::!:

Jæja ætli það sé ekki tími til kominn að renna yfir bækurnar og undirbúa sig aðeins betur fyrir prófið. Ég var svo að spá í að setja upp barnasíðu fyrir Hildi Líf og litla krílið svona þegar ég er komin í frí og hef EKKERT að gera. Held að það verði bara betra heldur en þetta blogg. Hvað finnst ykkur???

Jæja bestu kveðjur héðan úr DK

Anna Rósa með ólátabelginn ínní sér.


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 08:16:40 / htsi

Þið segið það já, bara 22 dagar til jóla!!!

Hér í danaveldi er frekar mikið að gera hjá fjölskyldunni þessa dagana. Skilaverkefni og aftur skilaverkefni hjá Helga og lokaverkefni hjá mér. Það er varla hægt að segja að við sjáumst mikið þessa dagana. Aumingja Hildur er nú farin að finna fyrir því hversu uppteknir foreldrarnir eru og er orðin frekar þreytt á ástandinu. Við breyttum nú útaf "venjum" og skruppum í bæinn á föstudagskvöldið því þá var verið að kveikja á jólaljósunum niðrá göngugötu og jólasveinninn að koma frá Grænlandi. Eftir að hafa horft á skrúðgönguna sem fór í gegnum bæinn stukkum við inná Jensens Bøfhus og fengum okkur að borða. Gærdagurinn (laugard) var þá hins vegar nýttur í lærdóm í staðin. Við tókum okkur nú samt til og settum upp smá jólaskraut hjá okkur í gærkveldi Hildi til mikillar gleði. Var nú samt eitthvað hissa á því hverstu stuttan tíma þetta tók og fannst við ekki eiga mikið jólaskraut. Við ætlum á eftir að fara í IKEA og ath hvort við finnum ekki eitthvað meira skemmtilegt til að setja upp hjá okkur. Við höfum jú aldrei haldið okkar eigin jól í svona stóru húsi áður og þvi takmarkast jólaskrautið við litla íbúð hehe.

Maður er nú farin að finna fyrir smá þreytu og langar að komast í smá frí. Öll manns orka fer í skólann núna og síðustu droparnir af orkunni nýttir út í hið ítrasta. Ekki er nú langt eftir. Hugsið ykkur fyrir ca tveimur og hálfu ári síðan sá ég ekki fram á þessa stund. Er bara að klára nám eftir ca 2 mánuði. Skólinn er reyndar búinn eftir tvær vikur og þá fær maður smá jólafrí ef maður má kalla það frí en ég þarf að lesa fyrir próf allt jólafríið því fyrsta prófið er 3. jan. Síðan eru skil á lokaritgerðinni 8. jan og því nóg að gera næstu daga. Ætlum að reyna að vera búnar að klára að skrifa hana fyrir 21.des til að geta notað dagana milli jóla og nýárs til að lesa fyrir próf í tannréttingum og barnatannlækningum. Próf sem tekur um 5 tíma!!!!! Við fengum afhent í síðustu viku eyðublað frá skólanum yfir að skrá fólk í útskriftaveisluna sem skólinn heldur okkur til heiðurs. Maður fékk nú smá í magann þá. Fannst ég bara ekki vera tilbúin til að skrá mig í eitthvað svoleiðis þar sem ég er nú ekki einu sinni byrjuð í prófum. En danir eru svo skipulagðir að það þarf að gera þetta með mánaðar fyrirvara. Svo er nú eitt við það, maður má bara taka 3 persónur með sér. En ég meina það eru margir með foreldra og börn og hvað eiga þeir að gera?? Þó svo að ég taki með mér 3 fullorðna ætla ég nú bara að taka Hildu með mér. Finnst bara ekki að ég geti farið að skilja barnið mitt eftir í pössun á meðan. Hálf hallærislegt.

Bumbugullið okkar stækkar og stækkar núna og er farin að láta mig alveg vita af því ef því finnst eitthvað þrengt að sér og gefur mér væn spörk fyrir það. Það eru rosaleg læti inní mér á hverjum degi. Þetta er greinilega einstaklingur sem er ekkert mikið fyrir það að slappa af. Held ég viti hvaðan það komi hehe. Annars er Helgi farinn að hallast að því að þetta sé strákur, hefur það voða fast á tilfinningunni núna. Ég hins vegar er á báðum áttum ennþá.

Jæja ætli ég komi mér ekki í að ryksuga hérna það veitir ekki af. Ég ætla hins vegar að leyfa skólabókunum að eiga frí í dag.

Endilega verið dugleg að kvitta, okkur langar líka að heyra frá ykkur

Bestu kveðjur til ykkar heima á Íslandi

Anna Rósa og allir hinir. 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Heimsóknir
Í dag:  11  Alls: 38270
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012